Winamp Logo
The samsaeriskenning’s Podcast Cover
The samsaeriskenning’s Podcast Profile

The samsaeriskenning’s Podcast

Icelandic, History, 1 season, 67 episodes, 1 day, 8 hours, 44 minutes
About
Samsæri fjallar um samsæriskenningar ofl áhugavert t.d. fólk og staðir samsaeriskenning.is
Episode Artwork

Dularfullt hvarf Dennis Martin

Í þætti vikunnar fer ég yfir enn eitt mannhvarfsmál. Því miður eru þau bara allt allat of mörg og skelfilegt að týna barninu sínu. Týnt á aðeins örfáum mímútum, hljómar klikkað er það ekki? Njótið helgarinnar framundan í botn, sama hvað þið brallið 
7/30/202430 minutes, 48 seconds
Episode Artwork

Börn Nasistanna

Hvers þurfa börnin að gjalda? eða með aldri og áróðri getur það verið of seint eftir því sem þau eldast? Hef oft velt því fyrir mér hversu hræðilegt það sé að vera barn morðingja, hvað þá SS manna, það er einhvað mjög truflandi við þá hugsun. Fer yfir bara smá brot af þessum börnum.
7/23/202420 minutes, 32 seconds
Episode Artwork

Bohemian Grove

Elítan en ekki hvað, New World Order. Hver veit kannski ekkert meira en útileiga með skemmtun hehehe skemmtun og leikrit eða ætli þetta hafi þróast út í myrkva hluti með myrkvum ásettningum. Ákveða hvernig á að minnka mannfjöldann og stjórna peningunum okkar, hvað við megum kaupa og hvert við megum ferðast. Held það sé bara ykkar að ákveða hverju þið trúið. Minni á blessaðar stjörnurnar 
7/16/202427 minutes, 25 seconds
Episode Artwork

Míníþáttur, Frásagnir geimfara

Stundum tekur lífið óvænta stefnu og allt breytist. Hef ekki haft tíma í að vinna við næsta þátt en var búin með míní samsæriskenningu vikunnar. Þannig að ég bara ákvað að hemda henni út í atmósið. Eigið yndislega viku kæru vinir mínir 
7/9/202411 minutes, 13 seconds
Episode Artwork

Fordlandia

Vona að vikan sé að fara vel í ykkur kæru vinir. Í þessum þætti fer ég yfir magnað fyrirbæri í sögunni, heill bær byggður í miðjum Amazon skógi. Hey með alla þessa peninga hvað gæti eiginlega klikkað? Elska einmitt svona sögur, sem skipta litlu máli en eru fjandi áhugaverðar. Minni enn og aftur á Insta og blessaðar stjörnur 
6/25/202425 minutes, 12 seconds
Episode Artwork

Axar morðinginn í New York

Má segja að þáttur vikunnar sé bókstaflega tileinkaður gömlu New York. Hrottaleg morð framin á saklausum konum á hótelherbergjum þeirra og aldrei fundist! Skuggalegir glæpir og hvað bara búin? Eða var hann bara rétt að byrja við að seðja morð hungrið sitt? 
6/18/202425 minutes, 19 seconds
Episode Artwork

Brottnám af geimverum (saga Betty og Barney Hill)

Í dag mjög áhugavert, eða allavega að mínu mati og ef ekki bara frásögn sem fær mig allavega til að trúa. Spurning að fara setja upp álhattinn!!! Eigið frábæra viku framundan kæru hlustendur og minni á stjörnur 
5/28/202427 minutes, 41 seconds
Episode Artwork

Vita verðirnir á Flannan eyju

Mannhvarfsmál, kannski ekki eins og þau eru flest, heldur á það sér stað úti á eyju um aldamótin 1900. Einhvað hræðilegt hefur átt sér stað, en hvað veit enginn. Aðeins hægt að giska inn í eyðurnar. Eigið yndislega viku framundan vinir mínir
5/21/202420 minutes, 42 seconds
Episode Artwork

Ku Klux Klan

Þáttur vikunnar, einn alræmdustu og elstu hryðjuverka samtök Bandaríkjana. Hvaðan kemur þetta mikla hatur og á þetta ekkert eftir að breytast? Ég held ekki, hatur því miður á pottþett alltaf eftir að lifa eins lengi og manneskjan lifi. Ég persónulega nota ekki orðið hatur, er einhvað svo sterkt orð. Synum kærleik og skilning, lífið er of stutt fyrir annað.
5/7/202419 minutes, 36 seconds
Episode Artwork

Bölvað málverk, the anguished man eða angistarfulli maðurinn

Þáttur vikunnar, bölvað málverk, marr hefur heyrt um nokkur þessi frásögn er svona í nýlegri kantinum. Alltaf finnst manni þetta jafnt áhugavert, rétt eða rangt? veit ekki hver verður að dæma fyrir sig. Minni á blessaðar stjörnurnar 
4/30/202420 minutes, 32 seconds
Episode Artwork

Hetjugoð eða sjúklegur lygaskúrkur (Steven Seagal)

Datt inn á svo áhugavert efni sem ég hafði bara aldrei heyrt um, varð að gera þátt um þennan mann svona ef þið væruð jafnt clueless og ég.  Eigið frábæra viku öll sömul 
4/23/202422 minutes, 6 seconds
Episode Artwork

Upphaf illskunar, Rothchild fjölskylduveldið

Þessi vika, uppruni fjölskyldunnar sem tengjist svo mörgum elítu samsæriskenningum og hver veit kannski stjórmál líka, allavega fjölskylda með gríðarlegan auð og völd! Eigið frábæra viku elsku vinir mínir 
4/17/202435 minutes, 30 seconds
Episode Artwork

Mannætu eyja Stalín

4/9/202425 minutes, 23 seconds
Episode Artwork

Mannætu eyja Stalín

Þessi þáttur er með varúð, ekki fyrir viðkvæma. Fer yfir Cannibal Island Sovétríkjanna, jeminn hræðilegar aðsæður í alla staði. Ótrúlegt að það var náð að halda þessu leyndu á áratugi! 
4/9/202425 minutes, 28 seconds
Episode Artwork

Hvarf Jeremy Grice

Mannhvarfsmál, alltaf nauðsynlegt að fjalla um þetta fólk eða því verra börn svo þau gleymist ekki og vonandi að aðstansdendur fái svör og geti reynt að halda áfram. Því miður er þetta eitt mál af svo mörgum sem hafa aldrei leyst. Eigið frábæra viku og já ég veit þátturinn degi ofseint 
4/3/202439 minutes, 38 seconds
Episode Artwork

Watergate

Mikli Watergate skandallinn er þáttur vikunnar, alltaf viljað kynna mér það og hey tilvalið víst ég er að gera þessa þætti. Ótrúlegt hvað þessi svokallaða elíta hefur mikil völd, en sem betur fer komst upp um þetta, minnir aðeins á Ted Bundy þegar hann var uppvísaður fyrir njósnir á flokki andstæðinga. Eigið öll yndislega páska og eitt í viðbót hef ekkert á móti stjörnum sko 
3/26/202424 minutes, 5 seconds
Episode Artwork

Hlið Helvítis (saga Bobby Mackeys)

Yes tveim dögum of sein, hey betra að hafa góðan þátt frekar en drep leiðinlegan. Í dag er það saga Bobby Mackeys Music World! Áhugaverður staður og saga staðarins, reimt? hver veit, allavega vilja margir draugaveiðarar meina það. 
3/21/202430 minutes, 2 seconds
Episode Artwork

Auschwitz Afríku (klikkaði einræðisherran)

Í dag er það skelfilega ástand sem Gínea hefur þurft að þola frá því þau fengu lýðræði sitt. Því miður er það nú oft þannig að klikkaðir valdafíklar ná völdum á saklausum íbúum og ekki ennþá aftur snúið. Sorgleg saga sem því miður heldur bara áfram.
3/12/202427 minutes, 1 second
Episode Artwork

Dularfullt andlát Superman (George Reeves)

Ofurhetja þáttur vikunnar, þegar ég segjist hafa áhuga á dularfullum hlutum þá meina ég það. Hef bara aldrei heyrt um þessa misteríu og taldi þvi að það sama gildi um marga, kannski ekki. En shit hvað er margt einkennilegt og dularfullt sem við höfum minnsta grun um, þá er bara um að gera og fjalla um það svo þessir einstaklingar gleymist ekki. Verum góð við aðra og eigið frábæra viku.
3/6/202441 minutes, 47 seconds
Episode Artwork

The Finders Cult með tengingu við CIA?

Satanic Panic reið yfir Bandaríkin í krinum 1980, sumt algjört histeríu bull en ekki þessi cult. Hann er eins ógeðslegur og hægt er að ímynda sér, set varúð á þátt vikunnar fyrir viðkvæma. Þetta er svona allt í einu mál, satanismi,, cult, mannsal og samsæri
2/28/202436 minutes, 10 seconds
Episode Artwork

Korovina Misterían

Fjallganga, já er æðisleg og fer oft sjálf á sumrin, en myndi hugsa mig tvisvar um eftir Dyatlov pass og svo Korovina harmleikinn. velja sér örugg svæði. Hvað ætli hafi komið fyrir? Ætli það sé bara jafneinfalt svar á báðum atvikum, náttúran? Eigið frábæra viku 
2/21/202435 minutes, 48 seconds
Episode Artwork

The Godmother Griselda Blanco

Varð að taka þessa evil konu fyrir eftir að hafa horft á nýja þætti um ævi þessarar konu og hvaða skaða hún náði að valda fyrir peninga og völd, held að svona lið verði valda fíklar frekar en að sækjast eftir peningum svona í lokin. 
2/13/202420 minutes, 3 seconds
Episode Artwork

Samningur við Djöfulinn

Að selja sína sál, veit ekki en það hljómar allt rangt við það. Í dag fer ég yfir sögu Robert Johnson, meistari blúsins eins og hann er kallaður og af góðri ástæðu. En getur í alvörunni verið að hann hafi selt það mikilvægasta sem við eigum? Getur verið að þetta sé hluti af Illuminati? Minni á instagram og þessar stjörnur 
2/6/202423 minutes, 40 seconds
Episode Artwork

Morðin á Deal fjölskyldunni

Nýr þriðjudagur, þessa vikuna er það óupplýst morðmál eins sorgleg og þau alltaf eru að þá er það virkilega okkar að passa uppá að þau gleymist ekki. Munum bara að vera góð við hvort annað, stundum er eitt bros alveg nóg  
1/30/202431 minutes, 4 seconds
Episode Artwork

Poveglia eyja

Jæja náði að klára þáttinn, bölvaður staður og reimdur? Það er spurning, en ég hef meiri áhuga á myrkvu sögunni. Áhugaverður staður og bara einn af svo mörgum sem áhugavert er að skoða betur. Eigið frábæra viku elsku vinir mínir
1/23/202419 minutes, 35 seconds
Episode Artwork

Project Blue Beam

Góðan daginn öll sömul. Í dag er það Prject Blue Beam! merkilegt og getur verið að heilaþvottur sé hafin á okkur án þess að við höfum minnsta grun um það? Eða ætli það sé ekki of seint að stoppa þetta verkefni? Minni á Insta og blessaðar fjandans stjörnurnar.
1/16/202418 minutes, 7 seconds
Episode Artwork

Philadelphia Tilraunin

1/9/202424 minutes, 33 seconds
Episode Artwork

Bölvun á bíl James Dean?

Ef einhvað á þessarri blessaðri jörðu getur verið bölvað og innihaldið einhvað illt, er það án efa þessi bíll, Little Bastard James Dean. Eigið frábæra viku kæru vinir
12/12/202320 minutes, 55 seconds
Episode Artwork

Tungl Lendingin

Örugglega án efa ein vinsælasta samsæriskenning allra tíma! Allt ein stór lýgi til að líta betur út gegn Sovétríkjunum? Það er ykkar að dæma, ég er nokkuð viss um að þetta skiptist svolítið í tvennt. Þeir sem trúa og svo þeir sem trúa ekki. Minni á helv. stjörnugjöfina hehe eigið frábæran dag.
12/5/202327 minutes, 40 seconds
Episode Artwork

Fjölskyldan sem hvarf

Heil fjölskylda sem hverfur sporlaust! Er víst sorglegt mynstur á highway 16 í Kanada. Minni á instagram og hey stjörnur hehe 
11/28/202326 minutes, 7 seconds
Episode Artwork

Chateau des Amerois

Elítan/Illuminate sama dæmi? Allvega sora dæmi ef rétt kann að vera, ykkar að dæma. Í dag fer ég yfir einn af svokölluðum stöðum sem elítan hittist gjarnan saman fyrir allskonar athafnir og skemmtun! Varúð á þætti vikunnar kæru vinir og eigið yndislega viku.
11/21/202329 minutes, 52 seconds
Episode Artwork

Aum Shinrikyo

Já já enn einn Sértúarsöfnuður, er nú til alveg nóg af þeim! En þessi er sko næsta level, þvílík þrautsegja eftir endalausar misheppnaðar tilraunir. Eigið góða viku öll sömul
11/14/202341 minutes, 40 seconds
Episode Artwork

Plum Island

Jamms enn og aftur eru það Bandaríkin! Spilliefni, efnavopn og dýra sjúkdómar. Ef þessi þáttur sýnir okkur ekki að við eigum og er gott að efast um margt, þá veit ekki hvað skal segja! Eigið frábæra viku kæru hlustendur 
11/7/202331 minutes, 13 seconds
Episode Artwork

Wendigo

Gleðilega Hrekkjavöku! Jæja síðasti Halloween þátturinn, mikið hlakkar mig til að fara aftur í samsæriskenningar. En í dag er það þjóðsaga frá Indjánum norður Ameríku, mannætu skrímslið Wendigo. 
10/31/202323 minutes, 8 seconds
Episode Artwork

Dudley Town

Reimdur Skógur? kæmi ekki á óvart miðað við nafnið á honum: Dark entry! En það er einhver ástæða fyrir því að þessi bær var yfirgefin á sínum tíma og kallast í dag, drauga bær! Þorði nú ekki að taka neina áhættu þessa vikuna köttsins vegna því er hann bara stuttur og góður. Eigið frábæra viku framundan öll sömul 
10/24/202321 minutes, 45 seconds
Episode Artwork

Sallie House

Þáttur vikunnar, Sallie húsið. Djöfulleg vera í líki lítillar stelpu eða bara lítil stelpa? ok ég er núna að gera minn annan þátt í þessum mánuði um einhvað djöfullegt og veit bara ekki svei mér þá hvort þetta ætti að vera sá síðasti, þar sem það virðast koma einhver slæm álög yfir heimilið!! En hér kemur allavega þessi þáttur, eigið frábæra viku 
10/17/202339 minutes, 30 seconds
Episode Artwork

Hvarf Michael Rockefeller

Mannhvafrsmál, einn ríkasti erfingi sögunnar að hverfa sporlaust eða hvað? Hver veit kannski drukknað á sundi eða látið sig viljandi hverfa til að lifa því lífi sem hann vildi fjærri hinum vestræna heimi. Eða er sagan sem Carl fékk að heyra yfir 50 árum seinna, rétta sagan? 
10/10/202333 minutes, 40 seconds
Episode Artwork

Warren Hjónin

Október veisla framundan, Warren hjónin í dag myndi ég segja að þau væru orðin vel þekkt fyrir sína vinnu við hið yfirnátturulega og djöfuleg öfl. En hvað ætli sé rétt í þessu, allt saman, smá ýkt eða bara ekkert af þessu? Þið getið bara svarað fyrir ykkur, hverju þið trúið, en get svo sarið það að einhver ill öfl viðast hafa komið hér á inn á mitt heimili bara við það að vinna þennan þátt. Setti þann atburð inn á Instagram ef þið eruð forvitin. 
10/3/202343 minutes, 2 seconds
Episode Artwork

Hver er Zodiac?

Jæja þá er það stóra spurninginn í dag, hver er Zodiac og mun hann nokkurn tímann finnast? í þessum þætti fer ég yfir svona helst grunuðu og væri svo ógó gaman að heyra frá ykkur, hvern þið teljið líklegan á að vera þessi misteriíu morðingi nánast allra tíma. Múna svo að gefa stjörnur og follow á Insta...
9/26/202341 minutes, 18 seconds
Episode Artwork

Samskipti að handan

Örugglega allir sem hlusta hafa misst ástvin, ætli það sé möguleiki á að geta haft samskipti og gæti verið að þau séu hjá okkur og reyni að láta okkur vita? Ég trúi því en þið? Eigið góðan dag kæru hlustendur 
9/19/202329 minutes, 15 seconds
Episode Artwork

Strákarnir á Lestarteinunum

Morð og yfirhylmingar, en ekki hvað. Margt sem á sér stað í þessum heimi okkar sem hljómar eins og sakamálamynd. Sorgleg endalok hjá ungum drengjum sem fá eflaust aldrei það réttlæti sem þeir eiga skilið.
9/12/202331 minutes, 34 seconds
Episode Artwork

Tupac Shakur lifir?

Nýr þriðjudagur og að sjálfsögðu nýr þáttur. Í dag fjalla ég um samsæriskenninguna um hvort Tupac sé ennþá á lífi og hafi sviðsett andlát sitt? Spennó og væri gaman að heyra ykkar skoðun á þessu :) Minni á email þáttarins ef það er einhvað [email protected]
9/5/202318 minutes, 51 seconds
Episode Artwork

Hið djöfullega ZOZO

Hversu margir hér hafa farið í andaglas allavega einu sinni yfir ævina, viss um að flest okkar hafi prófað. Við getum bara þakkað fyrir að hafa ekki náð sambandi við ZOZO, eða nema einhver hafi fengið óvelkomna heimsókn!!
8/29/202329 minutes, 15 seconds
Episode Artwork

MK Ultra

Treysta stjórnvöldum í einu og öllu, ég er sko alls ekki viss. Hversu mikið gerist sem við höfum ekki hugmynd um og þannig séð meigum aldrei vita. Í þættinum í dag fer ég einmitt yfir bara brot af því, tilraunum yfirvalda og CIA. Þvílík klikkun. njótið dagsins kæru vinir og minni á Instagram :)
8/22/202342 minutes, 35 seconds
Episode Artwork

The Skinwalker Ranch

Góðan daginn öll sömul og vona að þið séuð búin að hafa það gott í sumar, hey það er nú samt ekki búið. Í þessum þætti fer ég í samsæriskenninguna á bakvið Skinwalker Ranch. Búgarður í Utah, Bandaríkjunum. Það á víst að vera marg í gangi bæði Skinwalkers og UFO!!! 
8/15/202335 minutes, 39 seconds
Episode Artwork

27 ára klúbburinn

Allt of margir sem hafa kvatt þennan heim allt of ung. 27 ára klúbburinn, bölvun eða slæmur lífstíll hver dæmir fyrir sig hvað hann heldur að sé rétt. Njótið vikunnar og eigið frábæra verslunarmannahelgi, farið bara varlega kæru vinir. 
8/1/202331 minutes, 18 seconds
Episode Artwork

Morðin á Bishop Fjölskyldunni

Bishop fjölskyldan var hamingjusöm, virk og hafði allt með sér. En hvað kom eiginlega fyrir og hver var ástæðan á bakvið skelfiegu morðin. Svarið við þessum spurningum, verður aldrei svarað. Hafið það áfram gott í sumar og minni á Insta
7/25/202348 minutes, 54 seconds
Episode Artwork

Santiago flug 513

Sæl öll sömul, já ég veit stuttur þáttur þessa vikuna. Hey það er nú sumar er það ekki, betra stutt en ekkert. Þáttur vikunnar fjallar um flug 513 sem hvarf í 37 ár en birtist aftur upp úr þurru á áætlunarstað. Njótið vikunnar öll sömul og heyrumst eftir viku :)
7/18/202316 minutes, 47 seconds
Episode Artwork

Urban Legends Japan

Elska þjóðsögur og draugasögur frá öllum heimshornum. Í dag fer ég yfir bara smá brot af sögum frá Japan. Minni enn og aftur á Instagram og endilega henda stjörnum á dömuna. Njótið dagsins öll sömul
7/11/202325 minutes, 52 seconds
Episode Artwork

Magdalena Solis

Svakaleg saga frá Mexico, hef aldrei heyrt af þessu. Hversu mikið ætli hafi og eigi sér stað í heiminum sem við höfum ekki hugmynd. Minni enn og aftur á Instagram reikninginn samsæriskenning. 
7/4/202320 minutes, 44 seconds
Episode Artwork

Bermúda Þríhyrningurinn

Misterían og kenningar hafa alltaf verið yfir þessu svæði, en ætli séu komin svör í dag á bakvið öll þessi slys. Minni á að followa á ykkar veitum og að sjálfsögðu gefa kjellunni stjörnur :)
6/27/202336 minutes, 4 seconds
Episode Artwork

Baba Vanga

Baba Vanga, mögnuð kona. Bull eða ekki, alltaf gaman að fara yfir svona spádóma og sjá hvað hefur ræst og hver veit hvað mun rætast meira. Vonandi ekkert hehe 
6/20/202325 minutes, 55 seconds
Episode Artwork

Hvarf Richard Bendele

Mannhvarfsmál, já að mínu mati áhugaverð. Þar sem við búum á okkar litla Íslandi getur maður ekki ýmindað sér hversu auðvelt það er að bara bókstaflega gufa upp eða allavega get ég ekki ýmindað mér það. 
6/13/202341 minutes, 40 seconds
Episode Artwork

Bölvun Poltergeist

Þessa vikuna fer ég yfir hvort bölvun haf verið á myndinni Poltergeist. Annsi margar tilviljanir af sorglegum dauðdögum hjá leikurum myndanna. Minni á Instagram til að sjá myndir sem tengjast þáttunum :)
6/6/202340 minutes, 6 seconds
Episode Artwork

Flóttinn frá Alcatraz

Þáttur vikunnar er um hinn mikla flótta frá fangelsinu Alcatraz eða The Rock. Ótrúegt plan sem kom þeim allavega af eyjunni en hvað svo, hvað varð um þessa flóttamenn, létust á hafi úti eða lifðu þeir af. 
5/30/202333 minutes, 58 seconds
Episode Artwork

Urban Legends í Texas

Fer í þættinum í dag yfir nokkrar af þjóðsögum Texas. Skemmtilegar og áhugaverðar sögur! Læt svo auðvitað nokkrar myndir fylgja á Instagram. Njótið dagsins öll sömul 
5/23/202328 minutes, 9 seconds
Episode Artwork

Hvarf Brian Shaffer

Hvað varð um Brian Shaffer, hljómar eins og lélegur brandari! Læknanemi labbar inn á bar en kemur aldrei aftur út. Minni á followa á instagram samsæriskenning 
5/16/202337 minutes, 29 seconds
Episode Artwork

Brotlendingin í Roswell.

Þátturinn í dag er um hvað brotlenti í Roswell, New Mexico árið 1947. Stór samsæris yfirhylming eða eru yfirvöld að segja okkur almenningnum satt um hvað átti sér stað þennan dag.
5/9/202325 minutes, 46 seconds
Episode Artwork

Manson Fjölskyldan

Þáttur dasgsin. Manson Fjölskyldan, hvaða áhrif getur einn klikkaður enstaklingur haft á fólk? Stjórnað í einu og öllu og jafnvel látið myrða fyrir sig? Klikkað dæmi
5/2/202330 minutes, 26 seconds
Episode Artwork

Hvarf Beaumont Barnanna

Í þætti dagsins fer ég yfir hið dularfulla hvarf Beaumont systkinana. Hvað varð um þau á þessum fallega sumardegi á ströndinni!
4/25/202344 minutes, 23 seconds
Episode Artwork

Doppleganger

Þáttur dagsins, okkar illi tvífari Doppleganger!! betra að hafa varan á ef maður skildi verða svo óheppin að rekast á hann. Biðst afsökunar á seinkun þáttar, en held það fyrirgefi allir það. Minni á Instgram reikninginn Samsæriskenning, endilega followa 
4/17/202326 minutes, 28 seconds
Episode Artwork

Natalie Wood

Í þætti dagsins fer ég yfir andlát kvikmyndastjörnunar Natalie Wood. Slys eða ekki? og já ég verð að fara að klára þennan blessaða Instagram reikning til að geta deilt myndum sem tengjast þáttunum. Eigið frábæran dag og geggjað páskafrí.
4/4/202323 minutes, 33 seconds
Episode Artwork

Tímaflakk

Tímaflakk, áhugavert fyrirbæri. Margar sögur af miklum snillingum sem eiga að hafa verið að vinna með svokallaða tímavél. Þá spyr maður sig ætli einhver hafi fundið út hvernig þetta virkar og eru jafnvel einhverjir þarna úti flakkandi um á mismunandi tímalínum.
3/28/202337 minutes, 51 seconds
Episode Artwork

Nornaveiðarnar

Í þessum þætti fer ég aðeins yfir Nornaveiðrnar á myrkvu öldunum, hvurslags klikkun átti sér stað á þessum tímum. vil tileinka þessum þætti mínum snilldar nágranna og þakka innilega fyrir alla hjálpina :)
3/21/202331 minutes, 7 seconds
Episode Artwork

Kurt Cobain

Í ætti dagsins fer ég yfir mál Kurt Cobain, ætti nú að fara að gera Instagram aðgang til að deila myndum. er það ekki annars? Ef það eru einhverjar spurningar eða ábendingar getið þið haft samband við mig [email protected]
3/14/202337 minutes, 49 seconds
Episode Artwork

Morðið á JFK

Í þessum þætti fer ég yfir morðið á JFK og samsæriskenningarnar á bakvið það. 
3/7/202322 minutes, 12 seconds
Episode Artwork

Men in black

Í þessu Podcasti fer ég yfir samsæriskenningar og fleiri áhugaverða atburði. vill ég innilega þakka þeirri manneskju sem hjálpaði mér alveg gríðarlega mikið að koma mér af stað og fylla mig hugrekki að bara go for it eins og hún sagði orð rétt :) Inga í Illverk þú ert bara yndi.  
2/28/202322 minutes, 13 seconds