Winamp Logo
Bannað að dæma Cover
Bannað að dæma Profile

Bannað að dæma

Islandais, Comedy, 1 saison, 32 épisodes, Un jour, 19 heures, 17 minutes
A propos
B.A.D. Umræðuefni: Allt Bannað: Ekkert bara muna að það er bannað að dæma
Episode Artwork

Bannað að dæma - BDSM

Trigger Warning - til öryggis   Mjög fróðlegt og upplýsandi spall!  Dóri þorði ekki með. Inga Lísa kom og svaraði spurningum og útskýrði og sagði frá, og munið meðan þið hlustið... ÞAÐ ER BANNAÐ AÐ DÆMA! Sérstaklega það sem við höfum ekki reynslu af sjálf, þá er bara að hlusta og fræðast. Það má mynda sér skoðun, en það er bannað að dæma þá sem velja sér lífstíl sem við skiljum ekki, sama hvort það er BDSM eða vegan.... ;)   Þátturinn er í boði: Salatsjoppan og Oat Breakfastbar Ísbúð Akureyrar BRÁ Verslun - www.braverslun.is
01/01/20221 heure, 20 minutes, 18 secondes
Episode Artwork

Bannað að dæma - Átröskun - Birna Valtýs

Hæ!  Halldór hlandhaus var vant við látinn svo Heidda tók þetta ein. Mjög svo áhugavert og langt spjall við okkar bestu Birnu, sem segir okkur frá mismunandi myndum og tegundum af átröskun, bendir okkur á góðar leiðir til fræðslu og bata. Vonum að þetta spall opni augu, bæti skilning, auki fræðslu og hjálpi þeim sem þurfa hjálp.   Þátturinn er í boði: Ísbúðin á Akureyri Salatsjoppan Oat Breakfastbar BRÁ Verslun   Takk fyrir að hlusta   instagram: @valtysbirna @heiddisaustfjord @bannadaddaema  
28/12/20211 heure, 51 minutes, 49 secondes
Episode Artwork

Bannað að dæma - Jólin

Ákváðum að taka smá jólaspjall um hefðir og þess háttar. Segjum ykkur frá jólabragðarefunum sem við gerðum í samstarfi með Ísbúð Akureyrar en sunnudagar eru einmitt Bragðarefsdagar í Ísbúðinni því þá eru allir miðstærðar bragðarefir á 1000 kr! Að ógleymdum 15% afslættinum af ÖLLU hjá þeim út árið 2021. Einnig fá hlustendur okkar 20% afslátt af jólagraut og jólasalati hjá Salatsjoppunni og Oat Breakfastbar. Svo eru það jólakjólarnir frá BRÁ verslun sem þið fáið 15% afslátt af með kóðanum haustfjord. Það verður eflaust eitthvað meira rætt um jólin í næstu þáttum enda desember bara rétt að byrja :)
05/12/20211 heure, 19 minutes, 56 secondes
Episode Artwork

Bannað að dæma - Sara Forynja - Vitundar víkkandi efni

Þessi þáttur var tekinn upp snemma í sumar en sumarið fór eins og það fór krakkar mínir.   En hér kemur þáttur þar sem við áttum áhugavert spjall við Söru Maríu (@forynja á instagram) sem stundar nám í Transpersonal Psychotherapy....  Án þess að hafa fleiri orð um það... hlustið með opnum huga
26/11/20211 heure, 9 minutes, 18 secondes
Episode Artwork

Bannað að dæma - Jákvæðni

Þetta var ROSALEGUR þáttur - það var alvöru gírun í gangi og þið þurfið bara að hlusta!   Kaffið.is dreifir þættinum og er hann tekinn upp í psa.is  Hann er styrktur af Lemon og Brá.     Enjoy
20/11/20211 heure, 28 minutes, 40 secondes
Episode Artwork

Bannað að dæma - Inga Klausen og Slutshame

Tókum þennan upp snemma í sumar, margir búnir að vera að bíða eftir honum og hér kemur hann loksins! Mögulega er hann ekki fyrir viðkvæma... eðaaaa easily offended 😬    
27/10/20211 heure, 10 minutes, 38 secondes
Episode Artwork

Bannað að dæma - WE ARE BACK BABY!

WE ARE BACK   LISTEN TO US BABY   LOVE U   = BAD BABY
19/10/20211 heure, 2 minutes, 34 secondes
Episode Artwork

Bannað að dæma - ÁST

ÞÁTTUR EITTHVAÐ þetta var áhugavert, alvöru pælingar um ástina og hvernig hún virkar, hvað er virkilega ást og til hvers er fólk að þessu, hlustið bara! Uppkeyrslan og hróshornið á sínum stað eins og alltaf. Oat og salatsjoppan - Slippfélagið - birtacbd.is ásamt Lemon og X-mist sem styðja ávalt við bakið á okkur. Kaffið.is dreifir þættinum og er hann tekinn upp í www.psa.is   Takk fyrir okkur
18/06/202158 minutes, 21 secondes
Episode Artwork

Bannað að dæma - Vamos!

Bannað að dæma þáttur eitthvað? Þetta var sumarlegur og fjörugur þáttur, enda tekinn upp á VAMOS það er ekki sniðugt fyrir einstaklinga með athyglisbrest að taka upp þátt á kaffihúsi þar sem er mikið af fólki og bílar að keyra framhjá, og þar sem okkur var boðinn matur í miðjum þætti. Silja rekstrarstjóri BARR mætti óvænt i spjall, eða hún var dreginn í spjall, það var fjör! Þátturinn er í boði, VAMOS - Slippfélagsins - Birta CBD - Salatsjoppunar - Lemong og X-mist! kaffið.is dreifir þættinum
08/06/20211 heure, 11 minutes, 42 secondes
Episode Artwork

Bannað að dæma - Stóma með Adda Tryggva

loksins loksins! Þáttur 23. af BAD Það er loksins kominn þáttur eftir langa bið. Addi Tryggva mætti í settið og fræddi okkur um það hvernig er að vera með stóma, eftir margra ára helvíti af verkjum þá fann hann lækninguna og það var stóma, sem að hans sögn ætti að vera löngu búið að gerast, það breytti lífi hans. Addi byrjaði að vinna 7 ára og hefur verið vinnuóður síðan og brallað allann fjandann. Þið verðið bara að hlusta! Uppkeyrslan og Hróshornið á sínum stað  Þátturinn er í boði Blush.is - Salatsjoppunar - Slippfélagsins - Norður Ak og svo Birta CBD - farðu á birtacbd.is og nældu þér í 10% afslátt af þessum geggjuðu vörum með kóðanum BAD10 Það eru svo Lemon og X-mist sem styðja ávallt við bakið á okkur og erum við ævinelga þakklát fyrir það! kaffið.is dreifið þættinum og er hann tekinn upp í Podcast Stúdío Norðurlands
01/06/20211 heure, 16 minutes, 46 secondes
Episode Artwork

Bannað að dæma - Óþolandi PT 2!

Þáttur 22 af B.A.D.  
16/05/20211 heure, 21 minutes, 34 secondes
Episode Artwork

Bannað að dæma - Óþolandi

Þáttur 21. af B.A.D.   HVAÐ ER ÓÞOLANDI??   Þú þarft bara að hlusta til þess að heyra hvað okkur og fólki sem sendi inn finnst óþolandi.. ótrúlega mikið hlegið og miklar deilur um hvað er óþolandi og hvað ekki. Hróshorn og Uppkeyrsla á sínum stað. Salatsjoppan - Oat Breakfast bar - blush.is og slippfélagið  hjálpa okkur að láta ljós okkar skína. Takk fyrir!
09/05/20211 heure, 12 minutes, 38 secondes
Episode Artwork

Bannað að dæma - Króli og Hjalti

20. Þáttur af B.A.D. Þeir Króli og Hjalti kíktu í heimsókn, þeir eru báðir staddir fyrir norðan að leika í benedikt búálf, við töluðum hinsvegar um allt aðra hluti en það og fórum út um allt í umræðum, rosalega skemmtilegar og góðar umræður, kvíði,þunglyndi, gleði, sorg, dauði og dóp, svo var það Þóroddur Posi sem kom ansi oft fyrir, enda kóngur. Slippfélagið - Nesdekk - Sebastian hárvörur hjálpa þættinum að ganga ásamt Lemon og X-mist! það er kaffið.is sem dreifir þættinum og er hann tekinn upp í PSA.is Takk fyrir!
03/05/20211 heure, 53 minutes, 40 secondes
Episode Artwork

Bannað að dæma - Æskan

Þáttur 19. af B.A.D. Við töluðum um allt úr æskunni og hvað lífið var auðveldara, skylduhlustun fyrir good memories! Uppkeyrslan og hróshornið á sínum stað. Takk Sebastian Hárvörur - Slippfélagið - Nesdekk Akureyri og Dressmann Lemon og X-mist peppa okkur alltaf! Kaffið.is dreifir þættinum Takk fyrir okkur
26/04/20211 heure, 44 minutes, 22 secondes
Episode Artwork

Bannað að dæma - Sjálfsímynd - Lára Kristín

Þáttur 18 af B.A.D. Lára Kristín fylgdi Heiðdísi í gegnum allt hjáveituferlið og svuntuaðgerðina ásamt því að vera með hana í einkaþjálfun fyrir aðgerð, Lára var eins og klettur og upplifði ýmislegt í þessu ferli. Við fórum inn á instagram, sjalfsímynd, niðurrif og útlitsdýrkun og svo margt margt fleira.   Uppkeyrslan og hróshornið á sínum stað! Dressman - Slippfélagið - Nesdekk(20% með "PSA" kóða) - Sebastian Hárvörur - Lemon og X-mist sjá til þess að þátturinn gangi!   Takk fyrir okkur
22/04/20211 heure, 21 minutes, 44 secondes
Episode Artwork

Bannað að dæma - Verðlaunaþátturinn

Þáttur 17 af B.A.D. Það var spjallað um allt og svo líka um ekkert og svo meira um allt og svo only fans og svo ekki um only fans og hvað okkur líður vel og hvað okkur líður ekki vel og hvað er hægt að gera til að líða vel og það sé hægt að fara í sjósund og vera geðveikt lengi og fara í nudd og slappa geðveikt af og það var alvöru galsi í þessum þætti og þetta var bara MJÖG GAMAN Vá hvað þetta var leiðinlegur texti, en þátturinn bætir það upp.   hróshornið og uppkeyrslan á sínum stað   Slippfélagið - Sebastian Hárvörur - Nesdekk og Dressman koma okkur i gegnum þættina, ásamt King Lemon og X-mist - Takk fyrir okkur
18/04/20211 heure, 10 minutes, 26 secondes
Episode Artwork

BANNAÐ AÐ DÆMA X PODKASTALINN

BANNAÐ AÐ DÆMA ÞÁTTUR 16.  ÖÐRUVÍSI ÞÁTTUR   Podkastalinn mætti norður ásamt Óliver bro og collabaði með okkur BAD fólki.  Eru Akureyringar hjálpsamari en Reykvíkingar? Er hægt að fara í yoga í Vaðlaheiðargöngunum. Hvernig eiga sumarbústaðir að vera og eru fiskar með miðtaugakerfi? 

Við fórum yfir allt þetta og svo miklu miklu meira! Ótrúlega skemmtilegur þáttur Takk fyrir komuna podkastali!
15/04/20211 heure, 51 minutes, 5 secondes
Episode Artwork

Bannað að dæma - Ættleiðing og fósturbörn

15. þáttur af B.A.D. Það var þvílík ofurkona sem mætti í spjall til okkar, hún Íris Rún er búinn að taka að sér fleira en 1 og fleira en 2 fósturbörn, þau hjónin eru með risa hjarta og er samfélagið ansi heppið með svona manneskjur eins og þau. Við fórum yfir ferlið við að fá barn í fóstur, ættleiðingu, barnaverndarnefnd og svo ræddum við líka kakó serómóníu lífstílinn sem hún lifir. Við hefðum getað spjallað í 5 klst, spjallið var það gott. Uppkeyrslan og Hróshornið á sínum stað www.befiticeland.is  www.braverslun.is 15% off hjá þeim tveim með kóðanum: Haustfjord og www.ohanastore.is 15% off á kóðanum (BAD) Fagmennirnir í www.slippfelagið.is styðja einig við bakið á okkur ásamt www.dressman.is  Nú er dekkjavertíðin að hefjast og er 20% afsláttur hjá nesdekk akureyri ef þið framvísið kóðanum: PSA þegar þið greiðið! https://nesdekk.is/akureyri-timabokun/  Njótið vel!  
11/04/20211 heure, 33 minutes, 30 secondes
Episode Artwork

Bannað að dæma - Er lífið tilgangslaust? TRIGGER WARNING

14. þáttur af B.A.D.   Já kæru vinir, þessi þáttur var í þyngri kantinum, það upplifa allir hæðir og lægðir í þessu og lægðin var því miður ansi mikil þessa dagana hjá Heiddu okkar, lífið er misjafnt og fólk fær hinar ýmsu hugsanir stundum. Þegar líðan er svona þá er langbest að tala um hlutina, það er ástæðan fyrir því að við erum með þetta podcast. Þetta spjall var basicly spjallið sem við ætluðum að eiga bara inn í stofu eða á rúntinum með hvort öðru, en ákvaðum að taka þetta allt saman bara upp. Takk fyrir að hlusta
08/04/20211 heure, 21 minutes, 6 secondes
Episode Artwork

Bannað að dæma - Transfólk með Alexander Laufdal

Þáttur 13 af B.A.D. Alexander Laufdal kom í spjall og útskýrði allt fyrir okkur í sambandi við það að vera transmaður og hvernig hans ferli var. Fórum yfir fordóma, óþarfa spurningar, kynleiðréttingu, neyslu og hvað lífið getur verið ótrúlega misjafnt. Alexander er ótrúlega skemmtilegur gaur og það var magnað að spjalla við hann! Hróshornið og uppkeyrslan á sínum stað en þau eru í boði www.befiticeland.is og www.braverslun.is  afsláttarkóði (haustfjord) ásamt www.ohanastore.is (afsláttarkóði (bad) Þátturinn er einnig í boði www.xmist.is - www.lemon.is og www.slippfelagið.is  www.kaffið.is dreifir þættinum og er hann tekinn upp í www.psa.is    TAKK!
01/04/20211 heure, 9 minutes, 50 secondes
Episode Artwork

Bannað að dæma - Djammið með Dabba Rún

12. þáttur af B.A.D. Hver saknar ekki gömlu tímana?  1929 - Sjallinn - Madhouse - Club 13 - Dynheimar - Sveitaböllin og svo margt margt fleira! Dabbi Rún þefaði upp að við værum að spjalla um gömlu tímana og ruddist inn í stúdíóið og dældi á okkur sögum síðan í denn, enda enginn fróðari og reynslumeiri og Dabbi í þessum málum.  Uppkeyrslan á sínum stað í boði https://braverslun.com/ og https://befiticeland.is/ þar er afsláttarkóðinn: (haustfjord)  Hróshornið þar á eftir í boði https://ohanastore.is/ afsláttarkóðinn þar er: (BAD) Þátturinn er einnig í boði https://www.lemon.is og https://xmist.is/  Það er www.kaffið.is  sem dreifir þættinum og er hann tekinn upp í www.psa.is   Takk fyrir okkur!
28/03/20211 heure, 20 minutes, 40 secondes
Episode Artwork

Bannað að dæma - Herra Hnetusmjör

11. þáttur af B.A.D! Þetta var NEGLA! Herra mætti til okkar í spjall og fór á flug í sambandi við skólakerfið á íslandi, hann vissi alveg um hvað hann var að tala þar, ræddum djammið, tónlistina, drukkið og óþægilegt fólk, hvernig það er að halda sér edrú í kringum bransann og margt fleira! Herra og Huginn eru með podcastið "Félagsmiðstöðin" tjékkið á því! Uppkeyrslan og Hróshornið að sjálfsögðu á sínum stað, þar fengu Sara kærasta Herra, Björk Óðins og Dóri Ká hrósið. Þátturinn er tekinn upp í psa.is og er það kaffið.is sem dreifir þættinum! Kostendur þáttarins eru X-mist - Lemon - Dressman - OhanaStore - Brá og Befit. Takk ótrúlega mikið fyrir okkur
21/03/20211 heure, 10 minutes
Episode Artwork

Bannað að dæma - Prestar

10 þáttur af B.A.D. Sindri og Stefanía kíktu í spjall til okkar og töluðum um allt mögulegt!  Þau eru bæði prestar í Glerárkirkju og ræddum við sorg, gleði, tilfinningar og hvernig fólk tekst á við dauðann, þau eru bæði gífurlega hress og skemmtileg og var ótrúlega gaman að fræðast um líf þeirra, Sindri er tvíkynhneigður og Stefanía samkynhneigð, það hefur ekki truflað neinn innan kirkjunnar, enda á það ekki að gera það.  Hróshornið og uppkeyrslan voru á sínum stað! Þátturinn er tekinn upp í Podcast Stúdíó Akureyrar: www.psa.is  og er það kaffið.is sem dreifir þættinum.  Dressman - Lemon - X-mist- Brá og Befit eru þau sem standa þétt við bakið á okkur og erum við þeim ævinlega þakklát! Bannað að dæma
18/03/20211 heure, 13 minutes, 24 secondes
Episode Artwork

Bannað að dæma - Hjáveituaðgerð & Svuntuaðgerð

Þáttur 9 af B.A.D. Við tókum framhald af alkahólisma umræðunni og Heiðdís kláraði að fjalla um þau mál , svo nú ætti öllum spurningum að vera svarað. Hinsvegar þá ræddum við hjáveituaðgerðir og svuntuaðgerðir, Heiðdís hefur farið í bæði og svaraði hún öllum þeim spurningum í kringum þessar aðgerðir, við ræddum líka ýmis samasem merki í kringum þessar aðgerðir og neyslu og persónuleikabreytingar.  Uppkeyrslan og hróshornið góða var á sínum stað að sjálfsögðu! Þessi þáttur er tekinn upp í Podcast Stúdíó Akureyrar og það er kaffið.is sem dreifir þættinum. Hann er í boði X-mist, Lemon og Brá og Befit!  Takk fyrir okkur.
14/03/20211 heure, 27 minutes, 46 secondes
Episode Artwork

Bannað að dæma - Alkahólismi

Þáttur 8 af B.A.D. Þetta var ekki létt umræða, Heiðdís opnaði sig um alla sína neyslu og hennar sjúkdóm, hún opnaði á allt og leyndi ekki neinu, talaði um tímana þegar hún keyrði sig í kaf úr vinnu og streitu og þá voru vímuefnin eina lausnin, það er alls ekki góð blanda, enda endaði Heiðdís í meðferð sem á endanum gerði hana að frábæru manneskjunni sem hún er í dag. Alkahólismi er sjúkdómur sem er gífurlega miskilinn og leynist í hverri fjölskyldu, það er full þörf á að opna á umræðuna. Þátturinn er tekinn upp í Podcast Stúdíó Akureyrar og kaffið.is dreifir þættinum. Það eru X-mist og Lemon sem kosta þáttinn ásamt Brá og Befit.
11/03/20211 heure, 40 minutes, 34 secondes
Episode Artwork

Bannað að dæma - Lífið með Sólrún Diego

Þáttur NR 7 af B.A.D. Ein stærsta samfélagsmiðlaskvís Íslands mætti í settið til okkar og rosalega er Sólrún skemmtileg, hún er ekki vélmenni sem þrífur allann daginn, hún er ekki ferköntuð og vissuði að hún er mannleg eins og við hin? Sólrún er mjög áhugaverður karakter sem hefur gengið í gegnum ýmislegt í lífinu og farið í gegnum ansi stóran pakka af áreiti. Við ræddum sálfræðinga, pressu á manneskjum og hvernig fólk horfir vitlausum augum á náungann án þess að vita neitt. Uppkeyrslan og Hróshornið voru á sínum stað og voru Lina Birgitta og Ingvi Jón efst á lista þar! Þátturinn er tekinn upp í Podcast Stúdíó Akureyrar og kaffið.is dreifir þættinum. Það eru X-mist og Lemon sem kosta þáttinn ásamt Glow up og Höllinni á Ólafsfirði.
07/03/20211 heure, 28 minutes, 6 secondes
Episode Artwork

Bannað að dæma - Votta Jehóva með Andra Friðriks

ÞÁTTUR 6 AF B.A.D. Það var ansi áhugavert að heyra skoðanir Andra á lífinu og hvernig hann lítur á það, Andri er Votti og fylgir öllum þeim gildum sem ríkja í Votta Jehóva.  Andri er einn skemmtilegasti karakter sem við þekkjum og ótrúlega góð sál. Hann hefur mismunandi skoðanir á ýmsum málefnum og ræddum við um það allt í þættinum. Farið var yfir samkynhneigð, blóðgjöf, jól og afmæli og sagði okkur frá paradís sem hann bíður mjög spenntur eftir að komast í. Við fórum að sjálfsögðu í uppkeyrsluna og hróshornið og fóru ansi mörg hrós út í kosmósið, sem er fallegt. Kæru vinir, spennið beltinn, hér kemur Andri Jehóva! Þátturinn er í boði Lemon og X-mist, Glow up og Höllinn Ólafsfirði! Það er svo kaffið.is sem dreifir þættinum og er hann tekinn upp í Podcast Stúdíó Akureyrar.
04/03/20211 heure, 28 minutes, 16 secondes
Episode Artwork

Bannað að dæma - Geðveik með Ingibjörgu Eyfjörð

5 þáttur af BAD  Þessi var heldur betur átakanlegur en fræðandi einnig. Ingibjörg Eyfjörð segir okkur sögu sína og af hverju hún er eins og hún er, áföllinn, geðdeild, óheilbrigð sambönd og að þora að fara sem lengst út úr boxinu og vera hún sjálf, Ingibjörg er tveggja barna móðir úr mývatnssveit sem lætur ekkert stoppa sig og henni er drullusama hvað þér finnst, Ingibjörg málar sig og klæðir ansi áberandi og er ekki eins og flestir. Djöfull er Ingibjörg samt mögnuð og skemmtileg! Það er kaffið.is sem dreifir þættinum og er hann tekinn upp í PSA.is X-mist og Lemon eru kostendur þáttarins og þökkum við þeim kærlega fyrir það! Bannað að dæma!
28/02/20211 heure, 17 minutes, 40 secondes
Episode Artwork

Bannað að dæma - KJÖT með Ævari Austfjörð

Fjórði þáttur af B.A.D. Þetta var ansi áhugaverðugur þáttur. Ævar Austfjörð er Carnivore sem snýst um að borða eingöngu kjöt, líðan og hreysti batnaði til muna eftir að hann byrjaði á Carnivore og hann mætti til þess að segja okkur sína sögu. Ævar talar ansi hreint út gagnvart Veganisma og segist tala í staðreyndum, Heiðdís og Dóri voru eins leikskólakrakkar þegar Ævar byrjaði að þylja upp fræðina sem hann er búinn að stúdera seinustu árin.  EKKI missa af þessu! Bannað að dæma er tekinn upp í Podcast Stúdío Akureyrar og dreift á kaffið.is  Það eru svo Blackbox og X-mist sem að kosta þáttinn og þökkum við þeim kærlega fyrir það!
25/02/20211 heure, 25 minutes, 46 secondes
Episode Artwork

Bannað að dæma - Útlit

Þáttur TVÖ af B.A.D. Fórum yfir mismunandi útlit, bdsm, hræsni í fólki og dómharða einstaklinga. mikið hlegið, mikið gaman, ásamt því að það komu tveir nýjir liðir inn í þáttinn: Uppkeyrslan og Hróshornið! Ekki missa af þessum þætti, hann er algjörlega þess virði. Þátturinn stendur af Heiðdísi Austfjörð og Dóra Ká, þvílíkt combo! Tekið upp í Podkast Stúdíó Akureyrar.
14/02/20211 heure, 10 minutes, 22 secondes
Episode Artwork

Bannað að dæma - Pilot

B.A.D.  Heiðdís Austfjörð Óladóttir blaðrar um allt og ekkert.   muna bara að að er bannað að dæma
08/02/202154 minutes, 26 secondes