Winamp Logo
Blanda – hlaðvarp Sögufélags Cover
Blanda – hlaðvarp Sögufélags Profile

Blanda – hlaðvarp Sögufélags

Icelandic, History, 1 season, 40 episodes, 1 day, 6 hours, 54 minutes
About
Blanda er hlaðvarp Sögufélags. Ætlunin er að Sögufélag komi sögunni með öllum sínum spennandi viðburðum, óvæntu atburðarás og dularfullu fyrirbærum á framfæri við þig.
Episode Artwork

Kolbeinn Rastrick um 30. marz 1949

Í þættinum ræðir Katrín Lilja við Kolbein Rastrick sem ritaði grein við forsíðumynd Sögu tímarits Sögufélagsins sem kom út í lok árs 2023. Í greininni, sem er byggð á BA-ritgerð Kolbeins úr kvikmyndafræði, greinir Kolbeinn kvikyndir sem teknar voru af óeirðunum við Austurvöll 30. mars 1949, daginn sem umræður voru á Alþingi um inngöngu Íslands í NATO.
4/9/202435 minutes, 17 seconds
Episode Artwork

#38 Haraldur Sigurðsson um Samfélag eftir máli

Haraldur Sigurðsson hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin fyrir Samfélag eftir máli: Bæjarskipulag á Íslandi og fræðin um hið byggða umhverfi. Í þessum þætti Blöndu ræðir hann við Einar Kára Jóhannsson um víðfeðmt efni bókarinnar. Samfélag eftir máli fjallar um skipulag borgar, bæja og þorpa á Íslandi á 20. öldinni. Í aðra röndina er rakin saga skipulagsgerðar og þéttbýlis og í hina hugmyndasaga skipulagsfræðanna og módernismans. Sjónum er einkum beint að mótun borgarskipulags í höfuðstað landsins en einnig að viðleitni ríkisvaldsins til að koma skipulagi á smærri bæi og þorp landsins. Sagan snertir á mörgum helstu álitamálum nútímasamfélaga, hvort sem litið er til húsnæðismála, samgöngumála, lýðsheilsumála eða umhverfismála. Þetta er yfirgripsmikið sagnfræðirit, með gagnrýnum undirtóni, sem byggir á áralangri rannsókn og víðtækri reynslu Haraldar af skipulagsmálum.
2/1/20241 hour, 25 minutes, 43 seconds
Episode Artwork

Kristín Loftsdóttir um Andlit til sýnis

Kristín Loftsdóttir, prófessor í mannfræði, segir hlustendum Blöndu frá nýrri bók sinni Andlit til sýnis. Í bókinni er lítið safn á Kanaríeyjum í brennidepli en þar má finna  brjóstafsteypur af fólki frá ólíkum stöðum heimsins sem gerðar voru á nítjándu öld. Þar á meðal eru brjóstmyndir sjö Íslendinga.
11/29/202340 minutes, 35 seconds
Episode Artwork

#36 Ragnhildur Hólmgeirsdóttir um Yfirréttinn á Íslandi

Þriðja bindi Yfirréttarins kom út 28. september. Ragnhildur Hólmgeirsdóttir sagnfræðingur og einn af þremur ritstjórum verksins segir hlustendum Blöndu upp og ofan af útgáfunni, heimildaleit og gloppóttum skjalasöfnum. Hér má heyra af hægfara hnignun Odds Sigurðssonar og uppþoti í kirkju og þjófnaðarmáli Þorsteins Jónssonar, sem annað hvort var öreigi eða gekk um með parrukk og innsiglishring. Katrín Lilja Jónsdóttir er nýr umsjónarmaður Blöndu.
10/19/202335 minutes, 55 seconds
Episode Artwork

#34 Kristjana Kristinsdóttir um Lénið Ísland

Í þættinum ræðir Jón Kristinn við Kristjönu Kristinsdóttur um bókina Lénið Ísland sem kom út árið 2021. Bókin er byggð á doktorsritgerð hennar og er mikilvæg grunnrannsókn á vanræktu tímabili í Íslandssöguni.
7/7/202328 minutes, 9 seconds
Episode Artwork

#34 Sjón um sögulegan skáldskap

Rithöfundurinn Sjón hefur skrifað margar sögulegar skáldsögur. Í þessum þætti ræðir hann við Einar Kára um hvernig hann nýtir sér frumheimildir og nýjustu rannsóknir í sagnfræði. Hann ræðir einnig viðhorf sitt til sögunnar og muninn á stöðu fræðimannsins og skáldsins.
6/22/202353 minutes, 52 seconds
Episode Artwork

#33 Páll Björnsson um 17. júní og framhaldslíf Jóns Sigurðssonar

Í tilefni þjóðhátíðardagsins ræðir Jón Kristinn við Pál Björnsson um framhaldslíf Jóns Sigurðssonar í sögulegu minni landsmanna. Lagt er út af bók Páls,  Jón forseti allur? sem kom út árið 2011 og hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin sama ár.
6/16/202344 minutes, 54 seconds
Episode Artwork

#32 Anna Dröfn Ágústsdóttir um Guðrúnu Pétursdóttur frá Engey

Anna Dröfn Ágústsdóttir, sagnfræðingur og lektor við hönnunardeild LHÍ, ræðir við Jón Kristin um forsíðumynd haustheftis Sögu 2022. Myndin, sem er úr safni Ólafs K. Magnússonar ljósmyndara, sýnir landsfund Sjálfstæðisflokksins árið 1951. Sérstaka athygli innan um fjölda karlmanna vekur kona á fremsta bekk sem heldur fyrir andlitið.
4/13/202330 minutes, 52 seconds
Episode Artwork

#31 Guðmundur Hálfdanarson um Volaða land og Ísland sem nýlendu

Guðmundur Hálfdanarson ræddi við Jón Kristin um kvikmyndina Volaða land, Ísland sem nýlendu og stöðu hugvísindanna. Hann er hrifinn af Volaða land en telur að nýlenduhugtakið geti ekki átt við um Ísland og á erfitt með að sjá sömu nýlendutengingar í myndinni og margir aðrir.
4/4/202344 minutes, 49 seconds
Episode Artwork

#30 Axel Kristinsson um Hnignun, hvaða hnignun?

Jafngilti vistarbandið þrælahaldi? Kúguðu Danir Íslendinga með einokunarverslun? Í þrítugasta þætti Blöndu ræðir Jón Kristinn við Axel Kristinsson um bók hans Hnignun, hvaða hnignun?, sem kom út hjá Sögufélagi árið 2018. Í bókinni skorar Axel kenningar um hnignun landsins á árabilinu 1262-1800 á hólm, og sýnir fram á að ýmislegt sem talið hefur verið sérstakt við Íslandssöguna sé það ef til vill alls ekki.
3/22/202340 minutes, 31 seconds
Episode Artwork

#29 Guðni Th. Jóhannesson um Stund milli stríða

Guðni Th. Jóhannesson, sagnfræðingur og forseti Íslands, ræðir bók sína Stund milli stríða. Saga landhelgismálsins, 1961-1971 við Markús Þórhallsson. Upptaka fór fram á bókakvöldi eftir aðalfund Sögufélags þann 21. febrúar 2023. Guðni segir meðal annars að saga landhelgismálsins sé þjóðarsaga og að forðast skal að reisa glæstar vörður þegar slík mál eru tekin fyrir. Hann segir frá breyttum áherslum sínun í sagnaritun eftir að hann tók við embætti forseta Íslands og áhrif spennusagnahöfundarins Tom Clancy á skrif sín. Þá kom honum á óvart að nýjar upplýsingar um pólitískar hleranir og njósnir hafi ekki vakið meira umtal.      
3/7/202349 minutes, 46 seconds
Episode Artwork

#28 Hjalti Snær Ægisson um Sýnisbók þess að Ísland var ekki barbaraland

Jón Kristinn ræðir við Hjalta Snæ Ægisson bókmenntafræðing, sem er einn aðstandenda nýrrar útgáfu á ritinu Sýnisbók þess að Ísland er ekki barbaraland, heldur land bókmennta og menningar eftir Jón Thorchillius (1697-1759). Jón ritaði verkið rétt fyrir miðbik átjándu aldar sem svar við níðskrifum erlendra manna um Ísland. Hún hefur þó aldrei komið fyrir sjónir almennings fyrr en nú.
1/11/202354 minutes, 43 seconds
Episode Artwork

#27 Helgi Þorláksson um Sögustaði

Jón Kristinn ræðir við Helga Þorláksson um nýútkomna bók hans Á Sögustöðum, um Ísland sem nýlendu, söguskoðun sjálfstæðisbaráttunnar, samband Íslands við Danmörku, Guðmund góða Arason og ýmislegt fleira.
12/16/202243 minutes, 40 seconds
Episode Artwork

#26 Kristín Svava Tómasdóttir um Farsótt

Kristín Svava Tómasdóttir ræðir um bókina Farsótt. Hundrað ár í Þingholtsstræti 25. Í bókin er sögð saga sjúkdóma, lækninga og tilrauna til að vernda samfélagið gegn sóttum. Þetta er saga borgar og velferðarkerfis en ekki síst saga af fólki. Aðalpersónan er þó gamla timburhúsið sem byggt var árið 1884 sem fyrsta sjúkrahús Reykvíkinga. Síðar var það gert að farsóttaspítala, geðsjúkrahúsi og seinast gistiskýli fyrir heimilislausa.
10/17/202252 minutes, 5 seconds
Episode Artwork

#25 Hafdís Erla Hafsteinsdóttir um Mennina með bleika þríhyrninginn

Einar Kári Jóhannsson ræðir við Hafdísi Erlu Hafsteinsdóttur um hinsegin sögu og Mennina með bleika þríhyrninginn: Frásögn homma af vist sinni í fangabúðum nasista á árunum 1939-1945, sem nýlega kom út hjá Sögufélagi. Hafdís Erla ritaði eftirmála að bókinni þar sem hún fjallar um ferðalag bleika þríhyrningsins frá fangabúningum samkynhneigðra manna til baráttutákns hinsegin fólks, kynjakerfi Þriðja ríkisins, minningapólitík og margt fleira sem tekið er til umfjöllunar í þættinum.
9/20/20221 hour, 1 minute, 46 seconds
Episode Artwork

#24 Jón Kristinn Einarsson um Jón Steingrímsson og Skaftárelda

Einar Kári Jóhannsson ræðir við Jón Kristinn Einarsson um bók hans Jón Steingrímsson og Skaftáreldar sem nýlega kom út hjá Sögufélagi. Í bókinni er fjallað um för séra Jóns, sumarið 1784, með sex hundruð ríkisdali frá stiftamtmanni til sýslumannsins í Vík í Mýrdal. Þetta stórfé átti að nýta til að endurreisa byggð í Skaftafellssýslu eftir Skaftárelda. Á leiðinni opnaði Jón sendinguna og deildi ófáum ríkisdölum út til nauðstaddra sem og sín sjálfs. Sú ákvörðun mæltist illa fyrir og Jón var kærður til yfirvalda í Kaupmannahöfn. Þetta mál er greint á grundvelli áður ókannaðra heimilda. Fram kemur nýtt sjónarhorn á móðuharðindin, þar sem tekist var á um neyðarhjálp með gjörólíkum áherslum íslenskra og danskra embættismanna.
8/29/202246 minutes
Episode Artwork

#22 Hrafnkell Lárusson um Íslenska dyggðarsamfélagið undir lok 19. aldar

Markús Þorhallsson ræðir við Hrafnkel Lárusson um grein hans, Íslenska dyggðarsamfélagið í lok 19. aldar, sem birtist í Sögu LIX - 2 2021. Hrafnkell Lárusson skrifar um einkenni, áhrif og hnignun þess sem hann kallar íslenska dyggðasamfélagið og það hvernig viðurkenndar dyggðir, trúarhugmyndir og siðferðisviðmið tóku breytingum á Íslandi um aldamótin 1900, með sérstakri áherslu á frumheimildir frá Austurlandi. Grein Hrafnkels byggir að hluta á doktorsritgerð hans í sagnfræði sem hann varði við Háskóla Íslands í apríl 2021.
5/13/202256 minutes, 18 seconds
Episode Artwork

#21 Nýjar rannsóknir tengdar Landsnefndinni fyrri

Í þessum þætti af Blöndu ræðir Einar Kári Jóhannsson við sjö nemendur í sagnfræði við Háskóla Íslands. Nemendurnir eru allir að vinna sjálfstæðar rannsóknir á ýmsum málefnum 18. aldra með hliðsjón af skjölum Landsnefndarinnar fyrri 1770-1771. Síðustu ár hafa þessi skjöl komið út í fimm bindum á vegum Þjóðskjalasafns Íslands og Sögufélags. Sjötta og síðasta bindið er væntanlegt síðar á árinu 2022. Viðmælendur eru Guðrún Hildur Rosenkjær, Kolbeinn Sturla G. Heiðuson, Páll Halldórsson, Kjartan Atli Ísleifsson, Gauti Páll Jónsson, Ólafur Einar Ólafarson og Steinar Logi Sigurðarson.
4/8/202241 minutes, 9 seconds
Episode Artwork

#12 Kristín Svava Tómasdóttir um vorhefti Sögu 2021

Markús Þórhallsson ræðir við Kristínu Svövu Tómasdóttur, ritstjóra, um innihald vorheftis Sögu 2021. Saga - tímarit Sögufélags kemur út tvisvar á ári, vor og haust. Efni þess er fjölbreytt og tengist sögu og menningu landsins í víðum skilningi. Auk Kristínar Svövu ritstýrir Vilhelm Vilhelmsson Sögu. Þetta fyrra hefti 2021 er óvenju þykkt og í því eru fjórar ritrýndar greinar, 14 ritdómar, svar við ritdóm og ein ritfregn. 
6/18/202144 minutes, 46 seconds
Episode Artwork

#11 Sverrir Jakobsson um Væringja

Í ellefta þætti fáum við til okkar Sverri Jakobsson, prófessor í miðaldasögu við Háskóla Íslands. Á síðasta ári kom út bók eftir Sverri hjá forlaginu Palgrave Macmillan sem ber heitið The Varangians: In God's Holy Fire, en þar rekur Sverrir sögu norrænna manna í austurvegi, og varpar nýju ljósi á ýmislegt í þeim efnum. 
5/3/202137 minutes, 59 seconds
Episode Artwork

#6 Áslaug Sverrisdóttir um Sögu Heimilisiðnaðarfélagsins

Í sjötta þætti Blöndu ræðir Dr. Áslaug Sverrisdóttir við Markús og Jón Kristin um bók sína Handa á milli. Saga Heimilisiðnaðarfélags Íslands 1913–2013. Hún segir okkur frá uppruna heimilisiðnaðar á Íslandi, hvernig Heimilisiðnaðarfélagi hefur reynst landsmönnum vel á krepputímum, gullaldarárum félagsins áratugina eftir seinni heimsstyrjöld og því hvernig félagið hefur breyst og þróast í takt við samfélagsbreytingar hér á landi.
12/17/202057 minutes, 25 seconds
Episode Artwork

#4 Kvennaganga

Í fjórða þætti Blöndu er brugðið út af vananum og haldið út úr hljóðverinu. Höfundar bókarinnar Konur sem kjósa, Erla Hulda, Kristín Svava og Ragnheiður fara með hlustendur í kvennagöngu um miðbæ Reykjavíkur, þar sem við fylgjum þeim í gegnum sögu kvennabaráttu á tuttugustu öld. Kvennakórnum Kötlu og stjórnendum hans Lilju Dögg Gunnarsdóttur og Hildigunni Einarsdóttur eru færðar þakkir fyrir afnot af laginu Áfram stelpur í útsetningu Aðalheiðar Þorsteinsdóttur.
11/27/202040 minutes, 7 seconds
Episode Artwork

#3 Sumarliða R. Ísleifsson um Í fjarska norðursins

Í þriðja þætti fáum við til okkar í viðtal Sumarliða R. Ísleifsson, lektor í hagnýtri menningarmiðlun við Háskóla Íslands og stjórnarmann í Sögufélagi.  Sögufélag gaf nýlega út bók hans, Í fjarska norðursins. Ísland og Grænland - Viðhorfasaga í þúsund ár. Í viðtalinu ræðir Sumarliði meðal annars af hverju viðhorf til Íslands og Grænlands erlendis hafa verið jafnólík og raun hefur borið vitni, en íbúar eyjanna tveggja hafa ýmist verið taldir yfirburðafólk, eða menningarsnauðir skrælingjar. 
11/27/202040 minutes, 1 second
Episode Artwork

#2 Stutt kynning á bókum ársins 2020

Markús og Jón Kristinn ræða bækur Sögufélags á árinu 2020. Útgáfan í ár er fjölbreytt. Bókin Konur sem kjósa fjallar um íslenska kvenkjósendur í heilda öld, Handa á milli eftir Áslaugu Sverrisdóttur segir sögu Heimilisiðnaðarfélags Íslands 1913–2013 og fimmta bindi Landsnefndarinnar fyrri koma vinnugögn nefndarinnar sjálfrar fyrir sjónir almennings í fyrsta skipti. 
11/27/202031 minutes, 1 second
Episode Artwork

#0 Kynningarþáttur

Blanda var upprunalega heiti tímarits sem Sögufélag gaf út á árunum 1918–1953. Markmið Blöndu voru að fræða og upplýsa almenning, og að bera söguna á borð í aðgengilegum búning. Hlaðvarpið Blanda er afrakstur MA-verkefnis Markúsar Þórhallssonar í blaða- og fréttamennsku við Háskóla Íslands, og markmið hinnar nýju Blöndu eru um margt þau sömu og tímaritsins. Hér ræðir Jón Kristinn við Markús um tilgang hlaðvarpsins, tilurð þess og almennt um hlaðvörp og sagnfræði.
11/27/202025 minutes, 6 seconds