Winamp Logo
Þvottahúsið Cover
Þvottahúsið Profile

Þvottahúsið

Icelandic, Social, 8 seasons, 120 episodes, 6 days, 5 hours, 19 minutes
About
Þvottahúsið er áhugamanna lífsspeki hlaðvarp í umsjón bræðranna, Davíðs Karls Wiium og Gunnars Dan Wiium. Fúsi óttars sér um tæknimál og semur einkennisstef þáttarins.
Episode Artwork

Sigmar og Sandra eru núdistar

Nýjustu gestir Alkasts Þvottahússins eru bændurnir og núdistarnir Sigmar Örn Aðalsteinsson og Sandra Dís Sigurðardóttir. Fyrir um tíu árum síðan fóru þau nakin í heita pottin í sumarbústaðarferð með vinum og upp frá því var ekki aftur snúið. Smátt og smátt þróaðist það hjá þeim hjónum í að í dag skilgreina þau sig sem núdista og tilheyra sífellt stækkandi hóp manna og kvenna sem hittast reglulega við hin ýmsu tækifæri til að stunda sína nekt. Hópurinn sem nú telur um rúm hundrað manns hafa fram að þessu stundað sín samskipti í gegnum Facebook hópin Naturist Iceland en til stendur að stofna samtök núdista sem hluti af að getað rammað inn hina og þessa viðburði sem hópurinn stendur fyrir. Má nefna strandblak og yoga ásamt að gamal sundlaugin í Hafnarfyrði hefur verið leigð með jöfnu millibili fyrir svokallaðan nektarsunds eftirmiðdag. Einnig hefur hópurinn staðið fyrir skipulögðum hópferðum í hinar og þessar náttúrulaugar og hefur það vakið mikla lukku og þjappað hópnum saman.
10/1/20241 hour, 1 minute, 2 seconds
Episode Artwork

Alrún Ösp, aka, VARGYNJA

Nýjasti gestur Alkasts Þvottahúsins er engin önnur en BDSM drottningin og bindarinn Alrún Ösp. Alrún Ösp, sem gengur undir nafninu Vargynja, fór yfir í viðtalinu hvernig hún fór að finna fyrir hvötum sem snúa að sársauka og valdbeitingu þegar hún var unglingur. Til fróðleiks má nefna að BDSM er skammstöfun sem stendur fyrir bindingar, drottnun og undirgefni; síðan er sadó masókismi í lokin.Vargynja segir að finna megi mismunandi ásetning eða forsendur þeirra sem leiti inn í BDSM. Sumir fara þar inn í leit af smá spennu og eru svo kannski að daðra við BDSM í mörg ár þó án þess að vera haldin þessari djúpu kink hneigð sem svo einkennir aðra.
9/12/20241 hour, 10 minutes, 34 seconds
Episode Artwork

Ívar á gröfunni er ekki vóg þrátt fyrir mikla árvekni

Nýjasti gesturinn í Alkast Þvottahússins er engin annar en Ívar Pétur Hannesson, aka Dj Ívar eða Ívar á gröfunni.Ívar hefur komið víða við og rak meðal annars hin vinsæla og umdeilda næturklúbb Diablo hér í kringum aldarmótin. Ívar var virkur plötusnúður hér á árum áður og spilaði að eigin sögn frekar svona comercial danstónlist og í því samhengi segir hann á þeim tíma fundið fyrir talsverðum fordómum af hálfu þeirra plötusnúða sem þóttu meira töff og vinsælir. Plötusnúðabransinn vatt upp á sig og má segja að með lokum Diablo klúbbsins hafi Ívar fundið sinn botn hvað varðar drykkju og fíkniefnaneyslu. Fljótlega eftir að klúbburinn lokaði var hann komin á hálan ís í neyslu og farin að stunda vafasöm viðskipti sem leiddu til þess að hann var handtekin og dæmdur til fangelsisvistar. Hann fór þó í meðferð áður en hann hóf afplánun sem fór fram á Litla hrauni og svo Kvíarbryggju. Eftir að Ívar kom út úr fangelsi hefur hann haldið sér á beinu brautinni og getur státað sig af rúmlega 20 ára edrúmennsku. Í viðtalinu var farið á hluti sem snerta pólitískan réttrúnað því Ívar hefur þótt frekar liðtækur í komenntakerfum samfélagsmiðla og þá einna helst í málum sem snúa að hinsegin fólki, hælileitendum og almennri skilgreiningu á hugtökum sem snúa að karlmennsku. 
8/26/20241 hour, 44 minutes, 15 seconds
Episode Artwork

Ingibergur Þorkelsson kennir hugræna endurforritun

Nýjasti gestur Alkasts Þvottahússins er engin annar en Ingibergur Þorkelsson dáleiðandi og skólastjóri dáleiðsluskóla Íslands.Ingibergur flutti til Edinburgh um síðustu aldamót með konu sinni og fljótlega eftir hóf hann nám í dáleiðslu. Mörgum árum seinna flutti Ingibergur svo aftur til Íslands og þá staðráðin í að halda menntun sinni áfram sem og að kenna öðrum dáleiðslu. Í kjölfarið urðu námskeið og fluttir kennarar frá öllum heimshornum á sviði dáleiðslu sem hafa svo haft mikil áhrif á Ingiberg og hans nálgun í sínu starfi og nú í dag öllum þessum árum seinna hefur hann kennt dáleiðslu mörg hundruð manns. Af þeim einstaklingum sem lært hafa dáleiðslu hjá Dáleiðsluskóla Íslanda starfar um helmingur þeirra við dáleiðslu að einhverju leyti. Í viðtalinu fór Ingiberg yfir hvernig dáleiðslukennsla virðist hefur horfið úr sálfræðideild Háskóla Íslands á síðastliðnum 20 árum. Og í því samhengi minnist Ingibergur á að það þyki frekar sérstakt hér á landi að svo sé því ef litið er á sálfræðideildar annarsstaðar í heiminum þá er dáleiðsla kennd af miklum dugnaði og nefnir hann í því samhengi í sálfræði deild Yale háskólans í New Haven í BNA. 
8/19/20241 hour, 8 minutes, 15 seconds
Episode Artwork

Arnór Sveinsson er algjör heilsugúrú

Nýjasti gestur Gunnar og Arnórs í Alkasti Þvottahússins er engin annar en meistarinn Arn­ór Sveins­son heilsu kennari. Arnór er búin að nema hin og þessi fræði tengd kulda, öndun, kakóathöfnum og hljóð eða óm heilun. Í viðtalinu var farið um víðan völl en þar sem Arnór hefur komið í þáttinn áður þar sem hann fór yfir sögu sína var stefnan frekar tekin á tæknilegu hlið þessara iðkana sem Arnór kennir.
7/18/20241 hour, 24 minutes, 15 seconds
Episode Artwork

Hafsteinn Ægir elskar að hjóla

Nýjast gestur þeirra Arnórs og Gunnars í Alkastinu er Hafsteinn Ægir Geirsson. Hafsteinn hefur um margra árabil verið einn af fremstu hjólreiðaköppum Íslands þar sem ferilsskrá hans samanstendur af fjölmörgum íslandmeistaratitlum í ólíkum greinum hjólreiða; götuhjólreiðum, fjallahjólum og malarhjólum (gravel) svo eitthvað sé nefnt.
6/17/20241 hour, 44 minutes, 24 seconds
Episode Artwork

Sævar Kolandavelu, aka Poetrix er liðast í sundur

ALKASTIÐ FÓR Í HEIMAVITJUN Í ÞETTA SKIPTIÐ OG ÞVÍ ERU HLJÓMGÆÐI EKKI EINS OG Á AÐ VENJAST.Nýjasti gestur Alkastsins sem er í boði Þvottahús-samsteypunar er engin annar en Sævar Kolanduvelu sem einnig gengur undir listamannsnafninu Poetrix. Þetta viðtal krafðist heimavitjunar í fyrsta skiptið í sögu Þvottahússins því Sævar er stórslasaður og á því erfitt með samgöngur. Því fór viðtalið fram í eldhúsinu hjá Sævari í Kópavogi. Sævar, sem var áberandi fyrir tæpum tveim áratugu á íslenskri rapp senunni, er staddur á tímamótum þar sem líf hans hangir á bláþræði. Fyrir um átta árum síðan varð hann fyrir meiðslum sem ofan á genetískan stoðkerfisgalla er búinn að setja allt stoðkerfið og andlega heilsu hans bókstaflega á hvolf. Meiðslin lýsa sér þannig að liðband sem heldur saman spjaldhrygg, neðstu hryggjarliðum og mjaðmagrindinni og festir hrygginn við mjöðm, er slitið. Sævar lýsir því svo að vegna þessa séu þessir líkamshlutar hreinlega að rifna sundur og hryggurinn að losna smám saman frá mjöðminni. Slitið veldur því að hryggur hans togast langt umfram eðlilega hreyfigetu, en slíkt kallast á ensku out of save limits og öll liðbönd í baki hans eru hreinlega að rakna upp.Þetta ferli veldur svo keðjuverkun og er Sævar í dag með a.m.k. 16 aukaáverka víðsvegar um líkamann. Til þess að fá bót sinna meina þarf að festa saman á honum spjaldhrygginn, neðstu hryggjarliðina og mjaðmagrind með skrúfum og gera aðgerð á mjaðmakúlunni sem er farin að losna úr liðnum.
5/26/20241 hour, 51 minutes, 57 seconds
Episode Artwork

Valgerður Guðsteins er pro-fighter með byssur

Nýjasti gestur Arnórs og Gunnars í Alkastinu sem er í boði Þvottahússamsteypunar er engin önnur en Valgerður Guðsteinsdóttir; eina atvinnukonan í hnefaleikum á Íslandi í dag. Valgerður, sem hefur keppt sem atvinnumanneskja í hnefaleikum í nokkur ár, er að horfa fram að á sinn stærsta bardaga fram að þessu við hina 32 ára gömlu Jordan Dobie. Dobie sem er í 19 sæti á heimslistanum yfir kvenkyns boxara í sínum þyngdarflokk og hefur unnið alla 4 atvinnumanna bardaga sína. Dobie hefur mikla reynslu af bardagaíþróttum og hefur meðal annars orðið heimsmeistari í Muay Thai. Það er því ljóst að Valgerði bíður mikil áskorun. Valgerður segist aldrei hafa verið í betra formi og er ákveðin í að sigra í þessum bardaga. Frá því að hún byrjaði fyrst að boxa 19  ára gömul hefur hún breyst mikið sem boxari. Þá hafi hún á ákveðnum tímapunkti þurft að taka sjálfan sig alveg í gegn hvað varðar mataræðið þar sem hún fór að nota vörurnar frá Herbalife. Með auknum þroska fór hún einnig að huga meira að andlegri heilsu sem hún segir að sé alveg nauðsynlegt ef þú ætlar að ná langt sem boxari. Álagið sem fylgir bæði undirbúningnum sem og bardaganum sjálfum hverju sinni krefst þess að hausinn sé í lagi og að hægt sé að hugsa skýrt svo að viðbrögð og snerpa séu upp á tíu. Mikil sálfræði fylgir boxinu og beita andstæðingar allskonar aðferðum til að koma hvor úr öðrum úr jafnvægi
5/21/20241 hour, 24 minutes, 30 seconds
Episode Artwork

Sprengju Kata brýtur heilann

Nýjasti gestur Gunnars og Arnórs í Alkastinu sem er í boði Þvottahússins er engin annar en meistarinn Katrín Lilja Sigurðardóttir. Katrín sem er betur þekkt undir nafninu Sprengju Kata starfar dags daglega sem aðjúnkt í efnafræðikennari við Háskóla Íslands. Auk þess er hún mjög virk í allskonar íþróttum eins og hlaupi, hjólreiðum og sundi. Katrín eignaðist sitt fyrsta barn aðeins sextán ára gömul sem þýddi að hún var í raun þrem árum á eftir í sinni mennta- og háskólagöngu. Engu að síður hélt hún ótrauð áfram þrátt fyrir að á námsárunum í HÍ hafi hún eignast tvö börn til viðbótar. Snemma á sínum háskólaárum snerist hún til kennslu; fyrst sem stundakennari og nú, tíu árum síðar er hún enn að. Nú sem kennari í almennri-, lífrænni- og ólífrænni efnafræði.
5/5/20241 hour, 21 minutes, 50 seconds
Episode Artwork

Jón Arnar Magnússon tugþrautarkappi er rosalegur

Nýjasti gestur Gunnars og Arnórs í  Alkastsinu er enginn annar er Jón Arnar Magnússon. Jón Arnar er flestum landsmönnum kunnugur fyrir frækna frammistöðu á frjálsíþróttavellinum þar sem hann átti farsælan íþróttaferil sem spannaði yfir hartnær 20 ár. Á afrekaskránni hjá honum eru verðlaun á Íslands-, Norðurlanda-, Evrópu- og Heimsmeistaramótum, auk þess að hafa verið kosinn íþróttamaður ársins í tvígang. 
4/8/20241 hour, 26 minutes, 50 seconds
Episode Artwork

Kolbrún Karlsdóttir ferðalangur er nýkomin úr Amazon

Nýjasti gestur Arnórs og Gunnars í Alkastinu er ferðfrumuðurinn Kolbrún Karlsdóttir. Kolla eins og hún er kölluð er þó ekki bara ferðafrumuður í hefðbundnum skilning heldur er einnig um hugvíkkandi ferðalög að ræða. Kolla sem kynntist Ayahuasca fyrir mörgum árum síðan hefur tekið algjöra stefnubreytingu í lífi sínu síðan að hún fór í sína fyrstu athöfn. Síðan þá hefur hún farið í yfir 100 athafnir og upplifir að í gegnum það ferli hafi hún öðlast alveg nýja sýn á bæði sitt eigið líf sem og samfélagið sem hún tilheyrir. 
4/2/20241 hour, 5 minutes, 43 seconds
Episode Artwork

Snorri Óttarson er fimmtándi forsetaframbjóðandinn

Nýjasti gestur Alkastsins er forsetaframbjóðandi númer 15 af 18 að svo stöddu; Snorri Óttarsson. Snorri er fæddur og uppalinn á Akureyri en hefur verið búsettur í Horsens í Danmörku síðan 2007. Rétt fyrir kreppu fluttu þau hjónin og voru mjög heppin því þau borguðu aðeins 300 þúsund fyrir leigu á 20 feta flutningagám sem hálfu ári seinna hefði kostað nálægt milljón vegna hruni á íslensku krónunni. Snorri er menntaður húsasmiður en hefur svo í Horsens bætt við sig tveimur háskólagráðum. Hann hefur starfað við ýmislegt og verið mikið í akstri síðustu árin ásamt öðru. Snorri er mikil fjölskyldumaður og nefnir í viðtalinu að nú sé hann á landinu því faðir hann er mjög veikur á spítala um þessar mundir. Börn Snorra eru komin úr hreiðri að mestu leyti og munu því að öllum líkindum ferðast með honum á Bessastaði ef af því verður. Eiginkonan hans styður hann heilshugar og myndi líklega koma með og standa sína plikt sem hin íslenska first lady, enda vön álagi. 
3/21/20241 hour, 9 minutes, 7 seconds
Episode Artwork

Óskar Grétuson AKA Boris, sterkasti nuddarinn

Nýjasti gestur Arnórs og Gunnars í Alkastinu er engin annar en Óskar Grétuson, einnig þekktur sem Boris. Óskar Vann fjíögur ár í röð frá 2005 - 2008 sterkasti maður Íslands og keppti einnig í sterkasti maður heims með góðum árangri. Óskar ólst upp á Grundarfyrði áður en hann flutti í Fellahverfið í Raykjavík. Þasr upplifði hann að vera talsvert á skjön og átti erfitt með að eignast vini og upplifði mikið einelti og þá einna helst því hann var þykkur í vextinum. Sem unglingur hóf hann störf hjá Landhelgisgæslunni og upplifði mikið áfall við björgun flutningarskipsins Víkartinds er gæsluskipið fékk á sig tvöfalt brot og lagðist bókstaflega á hliðini með þeim afleiðingum að lærimeistari hann Elli lést eftir alvarlegt höfuðhögg. Óskar kynntist kraftlyftingum og sýndi þar mikla hæfileika og metnað. Hann óx fljót í metorði og lærði af mörgum af bestu kraftlyftingarmönnum Íslands. Í sinni síðustu lyftu á hans síðasta móti sem hann tók þátt í stórslasaðist hann og að eigin sögn bókstaflega murkaði á sér taugakerfið með þeim afleiðingum að hann keppti aldrei aftur. Hann fór inn í tímabil þar sem hann glímdi við allskonar verki og undarleg einkenni sem læknar áttu erfitt með að kortleggja en einn ráðlagði honum að skella sér bara í nudd og það átti eftir að hafa miklar aðfleiðingar í för með sér. 
3/11/20241 hour, 29 minutes, 10 seconds
Episode Artwork

Ástþór Magnússon okkar ástkæri fossetaframbjóðandi

Í nýjasta þætti Alkastsins settust þeir Arnór Jónsson og Gunnar Wiium niður með hinum ástsæla og friðelskandi forsetaframbjóðanda Ástþóri Magnússyni. Ástþór sem efnaðist fyrir um 30 árum síðan á rekstri tölvusyrirtækja fékk vitrun eða sýn þar sem hann áttaði sig á skertri samkennd viðskiptaheimsins og útfrá þeirri sýn tók ákvörðun um að helga líf sitt baráttu fyrir friði á jörðu. Hann stofnaði friðarsamtökin Frið 2000 á sínum tíma og vöktu samtökin mikið umtal og mikla athygli fyrir um tuttugu árum síðan. Hann hefur ítrekað boðið sig fram tl forsetaembættis síðan og þá með það að leiðarljósi að virkja embættið til friðar og sáttar í heiminum. Hann er knúin áfram af sýn sem segir aðÍsland verði miðpunktur friðar á jörðu og skapi þannig fordæmi fyrir viðleitni sem hann vill meina að sé í undanhaldi í alþjóða samskiptum. 
3/5/20241 hour, 10 minutes, 35 seconds
Episode Artwork

Töframaðurinn og dávaldurinn Jón Víðis

Töframaðurinn og dávaldurinn Jón Víðis kom í Alkastið og lék listir sýnar.
12/19/202359 minutes, 48 seconds
Episode Artwork

Sara Páls er ekkert að grínast með þessa dáleiðslu!

Alkastið heldur innreið sína á hljóðvarpsmakraðinn áfram. Að þessu sinni settust þeir Arnór Jónsson og Gunnar Dan Wiium niður með dáleiðaranum og orkuheilaranum Söru Pálsdóttur. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Sara kemur í viðtal hjá Gunnari því að á tímum Þvottahússins mætti hún tvisvar í viðtal og dáleiddi þá Gunnar í fyrra skiptið og Davíð bróður hans í seinna skiptið. Að þessu sinni átti að taka örlítið annan pól í hæðina og sjá hvort væri hægt að dáleiða Arnór og tengja hann aftur við fyrra líf. Arnór komst að því að hann var eitt sinn með hárkollu og í froðuskyrtu að meika bökk í suður franskri hafnarborg árið 1700 og súrkál.
11/22/20231 hour, 9 minutes, 25 seconds
Episode Artwork

Davíð Karl, hann gæti fokkað þér upp

Í nýjasta þætti Alkastsins settust þeir Arnór Jónsson og Gunnar Wiium niður með Davíð Karl Wiium. Davíð er aðdáendum Þvottahússins kunnugur sem meðstjórnandi þeirra rúmlega hundrað þátta sem hlaðvarpið Þvottahúsið gaf út á tveggja ára tímabili. Davíð er sannur þúsund þjalasmiður, með eindæmum atorkusamur enda með marga bolta á lofti. Gunnar og Davíð fóru yfir sögu Þvottahússins og mikilvægi þess að vera í góðum samskiptum við fjölmiðla ef óþekktir einstaklingar eins og þeir vildu koma hlaðvarpi sínu á framfæri. Gunnar tilkynnti nýjung sem snýr að tengslum við miðilinn DV sem bætist við Mannlíf sem hafa staðið á bakvið Þvottahúsið og nú Alkastið síðan að Marta á Smartland kanselaði Þvottahúsinu af pólitískum ástæðum.Kannabis, sveppir, fljúgandi furðuhlutir, swingmenningin, butplugs, slaufun og margt fleyrra í þessum þætti.
11/8/20231 hour, 31 minutes, 41 seconds
Episode Artwork

Guðrún Bergman og eðlufólkið - Alkastið í boði Þvottahússins

Í  nýjasta Alkastinu settust þeir Arnór Jónsson og Gunnar Wiium niður með Guðrúnu Bergmann og ræddu við hana um heima og geima. Guðrún hefur um árabil verið áberandi í íslensku samfélagi sem frumkvöðull, lífsstílsráðgjafi, uppreisnarseggur og almenn heilsuvera. Spjallið hófst á umræðu úr öðrum heimi, nánar tiltekið á heimsókn vera úr öðrum heimi til Íslands árið 1993, en þá höfðu verur af öðrum heimi boðað komu sína á Snæfellsnes. Fjöldi fólks lagði leið sína þangað til þess að verða vitni að opinberuninni, en því miður, létu geimverunar ekki sjá sig meðal almennings. Guðrún hefur það hins vegar eftir áreiðanlegum heimildum að geimverur hafi mætt á svæðið en út af umstangi og uppþoti í kringum mannskapinn sem hafði safnast þarna saman hafi þær aðeins opinberað sig fyrir fáum útvöldum.Heimsóknir af þessu tagi eru hins vegar langt því frá að vera nýjar af nálinni. Í mörg þúsund ár hafa verur úr öðrum heimum lagt leið sína til Jarðarinnar og birst mannkyninu í alls kyns myndum. Allt frá tímum Forn-Egypta eru heimildir fyrir heimsóknum og samskiptum við verur frá öðrum heimum. Flestar þessara vera koma hingað til Jarðarinnar í friðsamlegum tilgangi en það er alls ekki algilt. Til eru hryllingssögur af fólki sem segist hafa verið brottnumið af geimverum og meðhöndlað eins og ómerkileg tilraunadýr.
10/12/20231 hour, 51 minutes, 47 seconds
Episode Artwork

Alkastið Janna Napoli - með lífið í lúkunum

Alkastið er nýjasta afsprengi hlaðvarpssamsteypunar Þvottahúsið. Alkastið sem samanstendur af spyrlunum Gunnari Dan Wiium og Arnóri Jónssyni ásamt tæknitröllinu Mickael Omar Lakhlifi. Alkastið mun vera með þætti í vetur með 2-3 vikna fresti og munu málefnin sem verða tekin fyrir vera eldfim sem og léttvæg í bland. Nýjasti gestur Alkastins er Jana Napoli. Janna, 77 ára kona frá New Orlens sem frá tólf ára aldri hefur lesið í lófa. Hún segir í viðtalinu hvernig hún fyrir rælni rakst á bók þar sem lófalestur var útskýrður og um leið fann hún að ekki væri aftur snúið. Hún segir að hendurnar segja til um hver þú ert í raun og veru, eins og gluggi inn í sálina. Hún segir að fljótlega eftir getnað byrjar ferli í lófa og fingrum sem lýsa sér þannig að línur myndast sem segja til hvaðan þú ert að koma. Smátt og smátt eftir því sem aldurinn færist yfir bætast svo við einkenni sem kannski er hægt að lýsa sem afleiðing félagslegrar mótunar. 
9/17/20231 hour, 7 minutes, 21 seconds
Episode Artwork

Þvottahúsið#101 Vísindamaðurinn Egill S. færir okkur ZIM

Eftir fjögura mánaða þunglyndi, kulnum, covid, þráhyggju og myrkur er Þvottahúsið snúið aftur. Það má með sönnu segja að bræðurnir Gunnar og Davíð Wiium hafi lagst undir feld af gefnum forsendum og snúið tvíefldir til baka en með nýjar stefnur og áherslur sem verða stöðugt kynntar aftur og aftur eftir því sem þær breytast. Nýjasti gestur bræðrana er engin annar en vísindamaðurinn Egill Sæbjörnsson sem hefur verið búsettur í Berlín í ein tuttugu ár þar sem hann hefur starfað við sín vísindastörf tvinnuð í opnu flæði listsköpunar. Egill hefur komið til þeirra bræðra áður í Þvottahúsið, hann kom í þátt nr 34 sem tónlistar og listamaðurinn Egill S. og svo í þátt nr 95 sem Egill S. hin óáræðanlegi. Nú er hins vegar allt annað upp á teningnum, Egill er svo langt frá því að vera óáræðanlegur í þetta skiptið enda eru engum vettlingartökum beitt í þættinum þar sem þeir kryfja mál sem snýr að grundvallarhugmyndum mannsins um sjálfan sig, tilgang sinn og örlög. Hver erum við og hvert erum við að fara, hvaðan erum við að koma og átti það sér stað einhverjum byrjun og er það einhver endir? 
3/30/20231 hour, 5 minutes, 39 seconds
Episode Artwork

Þvottahúsið Adios, Good bye, Au revoir, Bless, Tschüss, arrivederci ....

Þvottahúsið kveður að sinni. Megi mátturinn vera með ykkur.
11/24/20226 minutes, 42 seconds
Episode Artwork

Þvottahúsið#88 Haraldur Erlendsson lítur á sannleikan brögðum ofar

Nýjasti gestur bræðarana Gunnars og Davíðs Wiium er engin annar en geðlæknirinn og nýkosin deildarforseti Guðspekifélagsins á Íslandi Haraldur Erlendsson.Haraldur útskrifaðist úr læknadeild Háskóls Íslands og starfaði á Borgarspítalnum á endurhæfingar og taugadeild og svo á lyfjadeild. Hann tók nám í taugalækningum í London (DCN). Haraldur starfaði í nær fimm ár við heilsugæslu á landsbyggðinni og var læknir á Flateyri þegar snjófljóðin féllu 1995. Þá byrjaði hann að vinna með fólk með áfallastreitu og í framhaldi af því lærði geðlækningar í Bretlandi og kláraði sérfræðiprófin 1999 og mastersnám 2000. Hann starfaði sem sérfræðingur í geðlækningum í Sussex í East Grinstead og síðar í Hastings. Hann byrjaði svo að starfa með konur með mikla áfallastreitu og jaðarpersónuleikaröskun í 10 ár Þá var hann yfirlæknir í Cygnet Hospital Bierley í Bradford og síðar geðlæknir í Dean Hospital hjá Partnership in Care. Árið 2012 flutti hann heim til Íslands og tók við sem yfirlæknir og forstjóri á Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði ásamt því að gegna stöðu sem yfirlæknir geðheilsuteymis Suðurlands á Selfossi í nokkur ár. Hann lét svo af störfum þar 2019 og hóf stofurekstur fyrst í Hveragerði og síðar í Kópavogi.Nýverið var Haraldur kosin deildarstjóri Guðspekifelagsins. Guðspekifélagið er félagsskapur karla og kvenna sem leita sannleikans í gegnum hin ýmsu form trúarbragða og kennisetninga. Guðspekifélaganum er ekki sama hvernig heimurinn er. Hann er í senn áhorfandi og þátttakandi. Hann vill skoða mannlífið, einkum mannshugann, eiga þátt í myndun jákvæðra viðhorfa, því samkvæmt guðspekinni eru allir menn fyrst og fremst menn þrátt fyrir ýmsa meira eða minna tilbúnar skiptingar. Enginn einn getur skorast undan hlutdeild sinni í ábyrgð heildarinnar – af því hann lítur á bræðralagið sem staðreynd. Einkennisorð Guðspekifélagsins eru “Engin trúarbrögð eru sannleikanum æðri”.https://lifspekifelagid.is
6/14/20221 hour, 7 minutes, 26 seconds
Episode Artwork

Þvottahúsið#72 Kjartan Ragnars STÓRI BITCOIN ÞÁTTURINN

Nýjasti gestur bræðrana Gunnars Dan og Davíðs Karls í Þvottahús var engin annar en Kjartan Ragnarsson Cryptosérfræðingur og lögmaður.Hann er einn af stofnendum og eigendum rafmynta viðskiptahallarinnar Myntkaup en Myntkaup sem fór í loftið í maí 2020 er eini Íslenski vettvangurinn þar sem hægt er að eiga viðskipti með rafmyntir.Kjartan leiddi okkur á hinar framandi og að mörgum finnst flókin heim rafmynta og þá helst heim rafmyntarinar Bitcoin.Þegar bræðurnir spyrja Kjartan hvað rafmyntir eða Bitcoin sé þá rekur hann mannkynssöguna og þá fjölmörgu gjaldmiðla sem við lýði hafa verið. Hvernig þeir hafa risið og fallið og hvernig það kerfi sem við þekkjum í dag er líklegt til þess að líða undir lok."Rafmyntir eru líklega gjaldmiðill framtíðarinnar." Segir Kjartan.
2/5/20222 hours, 4 minutes, 21 seconds